top of page


Brúðkaup

13. september 2025



Story

Kæru ættingjar og vinir

Í september 2025 fögnum við 15 árum saman. Frá brekkusleik eitt sumarkvöld árið 2010 höfum við verið samferða - eignast þrjú börn (líka einn hund), flutt í og úr Vesturbænum og út á Seltjarnarnes, kennt Fannari á hesta (með góðum árangri) og Írisi golf (með síðri árangri) og notið þess sem lífið býður upp á.

Í september 2025 eru líka þau tímamót að í heilan áratug höfum við sagst ætla halda brúðkaupið „á næsta ári“.

 

Nú stöndum við loksins við þau orð og blásum til brúðkaups þann 13. september 2025.

Athöfnin fer fram í Fríkirkjunni í Reykjavík og hefst klukkan 16:00. Strax að henni lokinni bjóðum við til veislu í Gamla bíó, þar sem við viljum fagna með ykkur öllum fram á nótt.

Endilega látið okkur vita hvort þið sjáið ykkur fært að vera með okkur með því að skrá ykkur hér fyrir neðan.

Tímasetning
13 Sept 2025, 16:00 – 14 Sept 2025, 01:00
Staðsetning
Fríkirkjan í Reykjavík / Gamla Bíó,
Ingólfsstræti 2a, 101 Reykjavík, Iceland
Details
bottom of page